Ping G430 SFT Brautartré

  • Carbonfly Wrap™ – Nýjung í G430. Toppur og hliðar kylfuhauss úr koltrefjum sem lækkar massmiðju (e. CG) og eykur hverfitregðu (e. MOI) fyrir enn meiri boltahraða og fyrirgefningu.
  • Facewrap™ – Örþunnur höggflötur úr “maraging” stáli er bollalaga og því er engin lóðning aftan á á honum. Þetta sparar þyngd og eykur boltahraða sama hvar er slegið á höggflötinn.
  • Spinsistency™ – Höggflöturinn hefur óvenjulega lögun fyrir stöðugri spuna í höggum sem slegin eru ofarlega eða neðarlega.
  • SFT týpan hefur stærri kylfuhaus fyrir aukna fyrirgefningu og massamiðju (e. CG) í hælnum til að minnka slæs.
  • Tungsten þyngd nýtt til að hámarka hverfitregðu (e. MOI) og lækka massamiðju (e. CG).
  • Stillanlegur flái/stefna á höggfleti um ±1.5° og einnig hægt að fletja legu um 3°.
  • Fáanlegt rétthentis og örvhentis í #3/16°, #5/19° og #7/22°.
  • Einnig fáanleg í HL útgáfu með léttari haus, sköftum og gripum. G430HL henta kylfingum með minni kylfuhraða sem vilja hærra og lengra boltaflug.
  • 59.900kr.