Uneekor Eye XO

  • Eye XO frá Uneekor er höggnemi sem fer í loftið fyrir framan og ofan kylfing. Mælir því bæði rétt- og örvhenta.
  • Tvær 3200 FPS myndavélar nema golfboltann og kylfuhausinn. Hægt er að sjá myndböndin af kylfuhausnum og golfboltanum.
  • Nemur öll högg, allt frá stystu púttum í lengstu teighögg. Gríðarlega nákvæmt boltaflug.
  • Fyrir ítarlegar og nákvæmar upplýsingar um kylfuhaus, þá þarf límmiða á höggflöt kylfunnar.
  • Mælingar á golfkylfu: kylfuhraði, nýtnistuðull (e. smash factor), áfallshorn (e. angle of attack) ferill, flái, lega, lágpunktur, höggstaður á höggfleti (e. impact location) og stefna á höggfleti.
  • Mælingar á golfkúlu: boltahraði, lóðrétt og lárétt flugtakshorn, spuni, snúningsás og útreiknaðar lengdir.
  • Verð 2.299.000kr. ásamt View hugbúnaði sem inniheldur æfingasvæði.
  • Engin árgjöld.
  • Hægt er að tengja við auka myndavélar til að greina golfsveifluna.