Carbonfly Wrap™ – Nyjung í G430. Toppur og hliðar kylfuhauss úr koltrefjum sem lækkar massmiðju (e. CG) og eykur hverfitregðu (e. MOI) fyrir enn meiri boltahraða og fyrirgefningu.
Mest fyrirgefandi blendingur sem Ping hefur nokkru sinni framleitt.
Facewrap™ – Örþunnur höggflötur úr „maraging“ stáli er bollalaga og því er engin lóðning aftan á á honum. Þetta sparar þyngd og eykur boltahraða sama hvar er slegið á höggflötinn.
Spinsistency™ – Lögun á höggfleti veitir stöðugri spuna í höggum sem slegin eru ofarlega eða neðarlega.
Tungsten þyngd nýtt til að hámarka hverfitregðu (e. MOI) og lækka massamiðju (e. CG).
Stillanlegur flái/stefna á höggfleti um ±1.5° og einnig hægt að fletja legu um 3°.
Fáanlegt rétthendis og örvhendis í #2/17°, #3/19° og #4/22°, #5/26°, #6/30° og #7/34°.
Einnig fáanleg í HL útgáfu með léttari haus, sköftum og gripum. G430HL henta kylfingum með minni kylfuhraða sem vilja hærra og lengra boltaflug.
50.900kr.
Fáanleg með Arccos skynjara í gripum 1.200kr. stk.