Description
- Uneekor XR frá Uneekor er höggnemi sem fer í loftið fyrir ofan og bakvið kylfing. Mælir bæði rétt- og örvhenta og engar líkur á að slá í nemann.
- Tvær háhraða myndavélar nema golfboltann og kylfuhausinn. Hægt er að sjá myndböndin af kylfuhausnum og golfboltanum.
- Þarf ekki sérstaka golfbolta eða límmiða á golfkylfuna
- Nemur öll högg, allt frá stystu púttum í lengstu teighögg.
- Einungis ein ethernet snúra í nemann sér um allan gagnaflutning og rafmagn.
- Mælingar á golfkylfu: kylfuhraði, nýtnistuðull (e. smash factor), ferill og stefna á höggfleti.
- Mælingar á golfkúlu: boltahraði, lóðrétt og lárétt flugtakshorn, spuni, snúningsás og útreiknaðar lengdir.
- Verð frá 1.299.900kr. ásamt View hugbúnaði sem inniheldur æfingasvæði.
- Hægt er að tengja við auka myndavélar til að greina golfsveifluna.