- Höggflötur er “forged cup-face”, sem þýðir málmurinn er pressaður og að það er engin suða á höggfletinum. Einnig er hann CNC fræstur til að vera þunnur í jaðrinum og þykkari í miðju. Þetta tryggir hámarks lengd í öllum höggum, þ.e. meiri boltahraða og nýtnistuðul(“smash factor”) alls staðar á höggfletinum.
- Þykkt á höggfletinum athuguð sex sinnum í framleiðsluferli, sem er oftar en hjá nokkrum öðrum framleiðenda. Allir hausar eru því eins nálægt löglegum “COR” mörkum og mögulegt er.
- Yfir 5.000 g/cm2 í hverfitregðu(MOI) til að högg sem eru ekki slegin á miðjuna fari sem beinast og lengst.
- Flatari “GRT” höggflötur fyrir stöðugra boltaflug.
- Gerður í plasmasuðumótum fyrir sem nákvæmasta framleiðslu.
- Mjúkt titanium “hosel” er hægt að beygja um +-4° í bæði legu og stefnu höggflatar.
- Fáanlegur í 9°, 11°, 13°, 15.5°, og örvhentis í 11° og 13.5°.
- Fæst einungis sérsmíðaður.