2023 gjörbreyttir hausar að innan fyrir betri tilfinningu, hljóð og stöðugri boltahraða.
Nú D18 tungsten til að lækka massamiðju og hækka hverfitregðu (e. MOI). Hærra flug, minni spuna og meiri fyrirgefning.
T200 járnin nota „Max Impact“ tækni aftan á höggflötinn, sem tryggir hámarks boltahraða og högglengd, án þess að fórna nákvæmni eða tilfinningu.
Fjölliðu efni þróað í samvinnu af bolta- og kylfudeild Titleist notað aftan á höggflötinn fyrir betri tilfinningu/hljóð.
Pressað (e. forged) stál notað í ofurþunnan L-laga höggflöt tryggir meiri boltahraða og tilfinningu í öllum höggum, sérstaklega þeim sem eru slegin neðarlega/þunn.
T200 járnin henta betri kylfingum sem vilja fallegar kylfur með góðri tilfinningu/hjóði, en jafnframt notfæra allra nýjustu tækni til að auka högglengd og fyrirgefningu.
Fáanleg rétthentis og örvhentis í #2, #3, #4, #5, #6, #7,#8, #9, #P og #W. Einnig til sem „utility“ build með hybrid sköftum í #2, #3 og #4.